Hvernig virkar minningasteinninn?
Í hvern stein er festur ryðfrír stálplatti með lasergrafnum QR-kóða. Þegar kóðinn er skannaður með síma opnast stafrænn minnisvarði með myndum, myndböndum og sögum um þann sem minnst er.
Hver getur breytt minnisvarða?
Eigandi minnisvarðans stjórnar honum að fullu. Eigandi getur boðið fjölskyldumeðlimum aðgang sem ritstjórar, og þeir geta þá bætt við efni. Aðrir geta ekki breytt neinu.
Geta gestir sett inn efni?
Já — gestir geta skrifað í gestabók, deilt minningu og sent inn myndir í gegnum póstboxið. Allt slíkt efni fer fyrst í samþykktarferli hjá eiganda minnisvarðans áður en það birtist.
Get ég deilt minningu nafnlaust?
Já. Þegar þú deilir minningu getur þú merkt hana sem nafnlausa og þá birtist nafnið þitt hvergi.
Hvað ef ég gleymi lykilorðinu mínu?
Smelltu á „Gleymt lykilorð" í innskráningarglugganum og þú færð tölvupóst með hlekk til að velja nýtt lykilorð.
Hversu mikið pláss fylgir minnisvarða?
Hverjum aðgangi fylgir 500 MB geymslurými fyrir myndir og myndbönd. Hægt er að bæta við rými — hafðu samband á info@eilifdin.is.
Þolir steinninn íslenskt veður?
Já. Steinarnir eru unnir úr íslensku hrauni og ryðfríu stáli og eru hannaðir til að standast íslenskar veðuraðstæður í áratugi.
Ég fann ekki svar við minni spurningu
Sendu okkur línu á Hafa samband eða beint á info@eilifdin.is — við svörum eins fljótt og við getum.